19.01.2010 19:53:50 / HlinS
Sælar skvísur og takk fyrir síðast. Ég var að spá hvort að þið væruð geim í dinner á Vegó á fimmtudagskvöldið ??
kv Hlínsa
»
04.12.2009 22:17:42 / HlinS
Ég og Manni ætlum að halda smá jólapartý þann 19. des og vera með jólaglögg og annað góðgæti. Stanslaust stuð að eilífu eins og einn góðuvinur minn söng hohoho
Fjörið byrjar um 20:30 og makar með að sjálfsögðu. Endilega láta vita hvort þið komist elskur !
Kv Hlínsa
»
22.11.2009 12:41:09 / HildurDis
Sælar sætu spætur
Er stemming fyrir að hittast heima hjá mér á miðvikudaginn. Ég er reyndar á bakvakt en það væri í mesta lagi eitt útkall og það tekur max 30 mín.... en það er venjulega ekkert að gera á venjulegu kvöldi.
Var að spá að skella í köku og hafa bara smá spjall, ákveða með jóladinner og þannig gaman gaman.
Hvað segið þið hverjar komast?? svona um 8 kannski eða seinna
»
05.11.2009 19:57:48 / KristinOsk
Sælar skvísur!!Það kom upp sú hugmynd að hittast á kaffihúsi á sunnudagskvöldið og ræða árlega jóladinnerinn okkar
. Hildur er líka ný komin heim frá NY og það verður gaman að heyra smá ferðasögu
. En endilega commentið á það hvort þið komist og hvar þið viljið hittast
.
»
26.09.2009 14:35:37 / KristinOsk
Jæja elskurnar,ég vil byrja á því að þakka ykkur öllum kærlega fyrir síðast og óska Kus og Adda INNILEGA TIL HAMINGJU með þennan stóra áfanga
!!! Þetta var alveg yndislegur dagur í alla staði og þið voruð alveg ótrúlega flott og fín. Veislan var alveg sjúkleg og ég veit að við skemmtum okkur öll alveg fáránlega vel
.
En annars þá var verið að spá hvort að allir væru ekki alveg rosa mikið til í að horfa á gæsunar og steggjunar-myndböndin??? Allavega þá var ákveðið að hittast heima hjá Kus og Adda FÖSTUDAGINN 2.okt kl.20. Hugmyndin var sú að allir kæmu með e-h til þess að setja á borðið,helst einhvern fingramat. Það væri svo frábært ef þið gætuð sett í comment,eða á facebook þar sem ég sendi ykkur líka þar í gegn,hvað þið hafið hugsað ykkur að koma með svo við séum ekki með mikið af þvi sama
.Einnig þurfum við að muna að koma með áfeng, ef þið viljið
.En ég vona innilega að sem flestir komist,og ég þarf varla að taka það fram að mökum er boðið líka,þeir eru víst líka svolítið spenntir fyrir þessu öllu saman
.
Kus&Addi verða með: Snittur sem hver og einn getur sett á.
Kristín&Stefán koma með: Mini kjötbollur og sósu og litlar pylsur með deigi og sósu með því.
Hlín&Manni koma með: Fat af heitum rétti.
Silja kemur með: Gosið 
Hlakka til að sjá ykkur!!!!
Fallegu hjónin 
»
04.08.2009 14:33:58 / Bjork
Jæja þá er komið að því !!
Gaypride er næsta laugardag ... gangan leggur af stað kl 14:00 frá hlemmi. Ég var að pæla hvort við myndum ekki mæta??
spurning um að setjast svo einhvers staðar ?? eða þá að ég get smellt í köku ?? hvernig líst ykkur á ??
»
30.07.2009 13:14:08 / KristinOsk
Það verður svaka GRILLPARTÝ heima hjá Snædísi og Jökli á morgunn,föstudag!!!! Allir koma með sitt eigið kjöt en meðlæti verður á staðnum
. Ef fólk vill koma sér í alvöru partýgír og fá sér e-h áfengt þá kemur það með það sem það vill
. Endilega commentið hvaða tími er bestur og hvort við viljum hafa krakkana með....eða ekki 
»
25.07.2009 23:07:57 / HildurDis
Innilega til hamingju með fallega nafnið á stelpunni ykkar
Birta Rós
Knús og kossar ykkar vinkonur í U&G
»
20.07.2009 12:20:32 / KristinOsk
Sælar elskurnar!!!Nú er Kus komin aftur heim frá Tene og langar líka svona HRIKALEGA til þess að hitta okkur,en það er auðvitað ekki skrítið þar sem við erum AWESOME hehe
. Við vorum að spá í að hittast á miðvikudag eða fimmtudag á einhverju kaffihúsinu. Endilega commentið hverjar komast
.
See´ya...
»
04.07.2009 22:35:47 / HlinS
Ég var að spá í að bjóða ykkur heim á þriðjudagskvöldið um níu leytið, hvernig er stemmarinn fyrir því
??
Kv Hlínzan
»
24.06.2009 12:31:29 / HildurDis
Það er movie time í kvöld:=)
Kl 20:00 í bíóinu hjá Kristínu ólöfu í kvöld MIÐVIKUDAG
»
21.06.2009 21:36:59 / HildurDis

Jæja sætu skvísur
Þá er komið að fyrstu skipurlögðu bíóferð ársins 2009 að ég held.
Það er planið að fara í bíó á annað hvort þriðjudagskvöld eða miðvikudagskvöld. Kommentið á hvaða dag þið frekar eða kannksi bara báða

Kveðja bíó nefndinn Kristín ólöf og Hildur
»
18.06.2009 14:47:26 / KristinOsk
»
09.06.2009 18:40:48 / KristinOsk
Ég & Stefán vorum að spá í hvort ekki væri gaman að við myndum öll hittast heima hjá okkur núna á LAUGARDAGINN(ATH breyttur dagur!!) um c.a sex leytið,gaman að byrja fyrr en seinna,og grilla hérna hjá okkur? Við Stefán myndum sjá um meðlæti og svona en þið kæmuð kannski bara með sjálf kjöt eða það sem þið viljið á grillið.... Endilega látið mig vita hvort þið komist ekki!!!P.S Þessi hittingur er að ósk ADDA hehe 
»
Síður:
1 2 3 ...
20